Mikið hefur gustað um SÁÁ síðustu vikur. Á sjöunda tug starfsmanna meðferðarsviðs samtakanna lýsti í gær yfir vantrausti á formann og stjórn SÁÁ. Þrír lykilstjórnendur hafa horfið á braut síðasta mánuðinn vegna ágreinings um afskipti stjórnar af faglegu starfi. Starfsfólk upplifir óvissu og fækka hefur þurft innlögnum á Vog vegna ástandsins.„Mér finnst þetta mjög alvarleg staða og ég hef af henni áhyggjur,“ segir Alma Möller heilbrigðisráðherra.„Mér þykir þetta leitt því við vorum komin með mjög góðan langtímasamning við SÁÁ og mér fannst allt vera á lygnum sjó. Þannig að ég er leið yfir þeirri stöðu sem upp er komin og þarna er auðvitað gríðarleg fagleg þekking sem gæti horfið á braut.“ TILBÚNAR AÐ KOMA AFTUR SKAPIST VINNUFRIÐUR Heimildir fréttastofu herma að bæði Ragnheiður Hulda Frið