Kvótakerfi í fiskveiðum að íslenskri fyrirmynd er að ryðja sér til rúms víða um heim um þessar mundir. Íslenskir sérfræðingar hafa verið fengnir til ráðgjafar m.a. fyrir milligöngu Alþjóðabankans og nú er svo komið að nokkur ríki hafa ýmist tekið kerfið upp að hluta eða eru í þann veginn að innleiða það. Frá þessu sögðu Fiskifréttir 26. júní 1998.