Íslenska kartaflan allt í öllu á Akranesi

Litla kartöfluhátíðin í svonefndu Stúkuhúsi við Garðaholt 3 í Byggðasafninu Görðum á Akranesi verður sett formlega klukkan tvö í dag þar sem boðið verður upp á skemmtilegan fyrirlestur og kartöflukonfekt svo eitthvað sé nefnt. Þetta er fimmta árið sem hátíðin er haldin.Vera Líndal Guðnadóttir er verkefnastjóri menningar- og safnamála hjá Akraneskaupsstað og veit allt um Litlu kartöfluhátíðina.„Hugmyndin er sem sagt að tengja saman sögu, ræktun og matarmenningu og sögu Akraneskaupsstaðar í samengi við kartöfluna,” segir Vera og bætir við:„Það er líka bara gaman fyrir Skagafólk að læra aðeins um söguna því að Akraneskaupsstaður var jú mjög merkilegur kartöfluræktarbær hérna á árum áður”.Eruð þið enn að rækta kartöflur af fullum krafti?„Já, en það er kannski meiri hobbýrækt held ég í görðunum
Íslenska kartaflan allt í öllu á Akranesi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd