Kona sem bar vitni gegn föður sínum í einu frægasta dómsmáli Ítalíu á síðustu árum, sem varðaði morðið á móður hennar, er látin. Konan, sem hét Denise Cosco, er talin hafa framið sjálfsvíg. Móðir hennar Lea Garofalo, var myrt árið 2009, þá 35 ára, jafngömul og Denise var þegar hún lést núna í vikunni.