Einn fluttur á HSU vegna áreksturs á Hellisheiði

Hellisheiði var lokuð til austurs vegna áreksturs þriggja bíla í morgun. Þetta staðfestir Þorsteinn M. Kristinsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi. mbl.is greindi fyrst frá. Samtals voru 12 manns í bílunum.Að sögn Þorsteins varð áreksturinn í Hveradalabrekkunni. Hann segir veginum hafa verið lokað vegna vinnu á vettvangi þar sem mikið brak sé vegna árekstursins. Sólin sé lágt á himni og hafi blindað ökumenn.Hann segir áreksturinn hafa verið minniháttar. Einn hafi verið fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) með minniháttar áverka.Fréttin hefur verið uppfærð eftir að Hellisheiði var opnuð á ný.
Einn fluttur á HSU vegna áreksturs á Hellisheiði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd