„Landverðirnir urðu bara varir við það að það var mikið olíusmit á nokkrum bílastæðum og röktu nánast slóðina upp á Hak þar sem bíllinn míglak olíu. Þeir báðu bílstjórann vinsamlegast um að halda kyrru fyrir og óska eftir nýrri rútu. Það væri ekki forsvaranlegt að hún keyrði í bæinn,“ segir Einar.Þetta segir Einar Á. E. Sæmundssen þjóðgarðsvörður á Þingvöllum. Hann segir lekann hafa verið talsverðan. TELUR RÚTUNA HAFA EKIÐ LEKANDI UM ALLT SUÐURLANDIÐ Hann segir atvikið bagalegt enda ekki gott að olía berist út í náttúruna. Svona lagað komi stöku sinnum fyrir og landverðir séu með þar til gerðan búnað til þess að þrífa olíuna upp. > En það sem okkur fannst nú kannski mest ámælisvert var að bílstjórinn upplýsti um að hann hefði óskað eftir nýrri rútu daginn áður vegna þess að þá lak hún