Veðurstofan spáir talsverðum lægðagangi næstu daga, vinda- og vætusömu veðri með köflum. Í dag er von á lægð sem dælir svölu lofti til landsins úr norðri, með rigningu norðanlands.Á morgun hlýnar heldur í veðri þegar suðaustanátt tekur við og þá rignir á Suður- og Vesturlandi. Um helgina snýst vindátt aftur til norðurs og á mánudag má búast við lítilsháttar úrkomu norðaustantil á landinu.Á þriðjudaginn eru bjartari horfur en þá verður landið líklega á milli lægða og gera má ráð fyrir að stytti upp á meðan. Á miðvikudaginn er aftur á móti búist við suðaustan- og austanátt með talsverðri rigningu á ný.