Þegar maður, sem hefur verið mér drjúg uppspretta ódýrra brandara í pistlum, tilkynnti um fyrirlestur í London skammt frá þar sem ég bý, keypti ég miða – minni mátti þakklætisvotturinn ekki vera. Árið 1989 var Francis Fukuyama óþekktur starfsmaður í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna. Í kjölfar greinar sem birtist eftir hann í tímariti fyrir áhugamenn um öryggismál öðlaðist hann hins vegar heimsfrægð....