Svikin gegn Íslendingum í Alicante: Spænsk stjórnvöld fá 1100 tilkynningar á ári

„Almáttugur, þetta er rosalegt áfall að lenda í svona,“ segir Guðrún Svava Pálmarsdóttir, 65 ára gömul íslensk kona, um svikin sem hún lenti í með leiguíbúð í Alicante á Spáni. Guðrún Svava borgaði fyrirtækinu Sammlind ehf. 360 þúsund krónur í apríl fyrir leigu á íbúð á Alicante í september og október.Þegar hún lenti á Alicante í síðustu viku hélt hún að hún myndi fara í þessa íbúð sem hún var búin að borga fyrir. Við komuna til Alicante fékk hún hins vegar upplýsingar frá eiganda fyrirtækisins, Samúel Jóni Samúlessyni, að hún fengi ekki íbúðina.Fréttir um svik þessa íslenska fyrirtækis í útleigu íbúða á Alicante hafa vakið nokkra athygli í vikunni eftir að fréttastofa greindi fyrst frá málinu á miðvikudaginn. Tíu einstaklingar hið minnsta hafa lent í því að tapa peningum á því að leigja í
Svikin gegn Íslendingum í Alicante: Spænsk stjórnvöld fá 1100 tilkynningar á ári

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd