30 árum eftir að æskuvinirnir Þorsteinn Guðjónsson og Kristinn Rúnarsson hurfu á fjallinu Pumori í Nepal fengu aðstandendur þeirra svör við ráðgátunni um hvað hefði orðið um þá. Í nóvember 2018 fann bandarískur gönguhópur fatnað undir fjallinu sem virtist hafa legið þar lengi.Sagan af leiðangri æskuvinanna Þorsteins og Kristins er rakin í sjónvarpsþættinum Á gamans aldri þar sem rætt er við Rúnar Guðbjartsson og í hlaðvarpsþættinum Mannshvörfin í Himalaja sem fluttur var á Rás 1. Í hlaðvarpsþættinum segja ferðafélagar og aðstandendur Þorsteins og Kristins frá atburðarásinni og áhrifunum sem málið hefur haft á þá.Það var tilfinningaþrungin stund þegar aðstandendur Þorsteins Guðjónssonar og Kristins Rúnarssonar fengu staðfest að fatnaður sem fannst undir fjallinu Pumori væri merktur þeim. Þo