Hútar hafa náð tökum á ströndinni við Rauðahaf og hertóku þrjár mikilvægar eyjur á Rauðahafi í skyndisókn í gær. Ein þessara eyja er Perim-eyja sem er í miðju Bab al-Mandab-sundinu við Rauðahaf, sem tengir Evrópu og Asíu um Rauðahaf og Súez-skurðinn.Frá þessari eyju geta Hútar gert árásir á olíuflutningaskip frá Sádi-Arabíu og ógnað skipaflutningum um þessa mikilvægu siglingaleið. Talsmaður Húta-hersins segir að öruggt sé fyrir öll skip að sigla um sundið, nema skip frá Sádi-Arabíu.Engin þjóð flytur út meiri olíu en Sádi-Arabar. Hútar eru hliðhollir Írönum og ef þeir ná fullum tökum á Bab el-Mandeb-sundi gæti það dregið verulega úr flutningi olíu frá Mið-Austurlöndum með tilheyrandi verðhækkunum.Breska ríkisútvarpið segir að ef Sádar geti ekki flutt olíu um Bab al-Mandab-sundið þurfi olíuf