Breska leyniþjónustan áætlar að 500.000 rússneskir hermenn hafi fallið í stríðsátökunum í Úkraínu. Yfirmaður breska hersins, Rich Knighton, greindi frá þessu í viðtali við Sky News í gær.Mesta mannfallið hefur orðið eftir janúar 2023. Á sama tíma hafa Rússar einungis náð tveimur prósentum af landsvæði Úkraínu. Þá er talið að samanlagður fjöldi fallinna, særðra og þeirra sem saknað er sé 1,5 milljón rússneskra hermanna.Í gær voru 1.660 dagar frá því að innrás Rússa hófst í Úkraínu, 24. febrúar 2022. Hersveitir Rússa hafa því barist lengur í Úkraínu en Rússar börðust í bæði fyrri og síðari heimsstyrjöld.Knighton segir að stríðsreksturinn hafi leitt til hægari vaxtar í Rússlandi, samdráttar í neyslu og þrálátrar verðbólgu. Hann sagði að fórnarkostnaðurinn fyrir rússneskt efnahagslíf, velferð