Hin eina sanna Dolly Parton.EPA / WILL OLIVERFlugvallaryfirvöld í Nashville í Tennessee í Bandaríkjunum hafa ákveðið að breyta nafni flugvallarins til heiðurs tónlistarkonunni og goðsögninni Dolly Parton sem lést nýverið.Stjórn flugvallarins samþykkti einróma í gær að hefja undirbúning að því að breyta nafni flugvallarins. Þótt ekki sé búið að ákveða endanlegt heiti þá verður nýja nafn flugvallarins til heiðurs Parton.PBS News segir að þetta verði í fyrsta sinn sem einn af 50 stærstu flugvöllum í Bandaríkjunum er nefndur eftir konu.Parton lést í Nashville 25. ágúst, 80 ára að aldri.