Sex fundust í bíl í Helsinki

Sex einstaklingar fundust í bíl í höfninni í Helsinki í vikunni en þeir höfðu falið sig í bílnum. Grunur leikur á að ökumaður bílsins hafi reynt að flytja fólkið ólöglega til landsins.Finnska ríkisútvarpið greinir frá því að fimm þeirra séu frá Erítreu og einn frá Marokkó. Bíllinn kom til hafnar í Helsinki með ferju frá Tallinn í Eistlandi.Ökumaður bílsins, sem er erlendur ríkisborgari, var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins á miðvikudaginn, grunaður um að hafa skipulagt ólöglega komu þeirra til Finnlands.Landamæraverðir segja smygl á fólki með þessum hætti vera þekkta leið til að koma fólki inn á Schengen-svæðið. Fólkið komi til Belarús og sé svo flutt þaðan áfram í gegnum ýmis lönd til annarra landa í Evrópu.Finnsk landamærayfirvöld tilkynntu í síðasta mánuði að eftirlitssveit yrð
Sex fundust í bíl í Helsinki

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd