Sjór við strendur Spánar aldrei jafn hlýr

Strandgestir á Malaga á Spáni. Myndin tengist fréttinni óbeint.EPA / Alvaro CabreraHitastig sjávar við strendur Spánar hefur aldrei mælst jafn hátt og í sumar samkvæmt spænskum hafnaryfirvöldum.Reuters greinir frá.Hæsta hitastig sjávar mældist við bauju nærri Baleareyjum, eða 33,02 gráður þann 5. ágúst. Fjórum dögum síðar mældist sjávarhiti við Tarragona 30,7 gráður og 30,5 gráður við Barcelona.Þá hefur hitastig Atlantshafsins einnig mælst óvenju hátt í sumar. 23. júní mældist hitastig sjávar 28,4 gráður út fyrir ströndum Pasaia á norðurströnd Spánar.
Sjór við strendur Spánar aldrei jafn hlýr

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd