Ebólufaraldurinn heldur áfram að breiðast út

Ebólufaraldurinn í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó hefur breiðst út til sjöunda héraðsins í landinu, Suður-Ubangi. Alls hafa 3.310 farist úr veirunni af þeim 6.843 sem hafa greinst með ebólu í faraldrinum.Ebólusmitaður einstaklingur lést í Suður-Ubangi eftir að hafa ferðast langa leið milli nokkurra héraða. Búið er að setja 38 einstaklinga í einangrun sem vitað er til að áttu í samskiptum við þann sem lést, til að reyna að koma í veg fyrir frekari smit.Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir að þörf sé á fimm þúsund heilbrigðisstarfsmönnum aukalega í landinu til að bregðast við faraldrinum. Þá er þörf á um 1600 sjúkrarúmum til viðbótar svo hægt sé að taka á móti smituðum einstaklingum.Ebóla smitast við snertingu líkamsvessa og getur valdið alvarlegum innvortis og útvortis blæðingum og líffærabil
Ebólufaraldurinn heldur áfram að breiðast út

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd