Fordæma drónaárásir á olíuleiðslu

Yfirvöld í Sádí-Arabíu segja drónaárásir hafi verið gerðar á olíuleiðslu sem liggur frá austri til vesturs í landinu á fimmtudagsmorgun. Drónarnir eru sagðir hafa flogið frá Írak og valdið tjóni í héruðunum Riyadh og Medina. Einhverjir særðust í árásunum en ekki hefur verið greint frá fjölda þeirra sem særðust.Utanríkisráðuneyti Sádi-Arabíu fordæmdi árásirnar og segir að þeim verði ekki svarað að sinni að ósk forsætisráðherra Íraks. Þess í stað ætli yfirvöld að styðja viðleitni írösku ríkisstjórnarinnar til að fyrirbyggja árásir frá Írak gegn Sádi-Arabíu og nágrannaríkjum. Yfirvöld í Sádi-Arabíu áskilja sér þó rétt til að verja fullveldi sitt, öryggi, innviði og íbúa.Ríkisstjórn Íraks sendi frá sér yfirlýsingu í gær sem greint var frá á ríkisfjölmiðlinum INA en í henni eru árásirnar sömule
Fordæma drónaárásir á olíuleiðslu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd