44 slösuðust og þar af einn alvarlega þegar lest fór út af sporinu í Frakklandi í dag.Lestin var á leið milli Rúðuborgar og Caen í Normandí-héraði með 186 farþega um borð. Hún fór út af sporinu rétt fyrir klukkan átta á staðartíma. Neyðaráætlun vegna fjöldaslysa var virkjuð og 130 slökkviliðsmenn, fimm læknateymi og 80 ökutæki voru send á vettvang.„Skyndilega komu nokkrir kippir. Í fyrstu hélt ég að þetta væri eðlilegt en svo eftir um þrjár sekúndur urðu þeir sífellt sterkari,“ sagði einn farþeganna, hinn 24 ára Louis, í samtali við ICI Normandie. „Ég gat ekki lengur haldið mér í sætinu,“ sagði hann. „Rúðurnar brotnuðu að hluta til og steinar af teinunum komu inn í vagninn. Þetta var virkilega mikið áfall. Ég skelf enn þá.“44 eru slasaðir, þar á meðal 18 ára stúlka sem er lífshættulega slö