„Það er keyrt á málið á hnefanum“

Hafnarfjarðarbær hét Tækniskólanum lóð fyrir nýja skólabyggingu sem er þegar í notkun fyrir aðra starfsemi. Ljóst er að framkvæmdir tefjast. Forsvarsmenn Tækniskólans hafa rætt óformlega við önnur sveitarfélög um að skólinn verði þar.Nýja Tækniskólanum er ætlaður staður við Flensborgarhöfn, á lóð sem afmarkast af Óseyrarbraut, Fornubúðum og Cuxhavengötu. Á þessu svæði standa byggingar, meðal annars stórt hús við Cuxhavengötu 1.Og áformin, um að til stæði að reisa 30.000 fermetra skóla í stað húsanna kom eigendum þeirra í opna skjöldu.„Það er keyrt á málið á hnefanum,“ segir eigandi húss í Hafnarfirði, þar sem byggja á nýjan Tækniskóla. Bærinn gaf skólanum vilyrði um að byggja nýja skólabyggingu á lóðinni sem þegar er í notkun. Skólinn kannar möguleika í öðrum sveitarfélögum. LÁSU UM ÁFOR
„Það er keyrt á málið á hnefanum“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd