Sakar yfirvöld um að hafa hylmt yfir alvarleika mengunar

Tæplega þrjú þúsund biðu bana í hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin 11. september 2001. Borgarstjóri New York, Zohran Mamdani, greindi frá því á dögunum að samkvæmt gögnum sem nýlega voru birt hefði asbest mælst nær alls staðar við World Trade Center eftir að turnarnir tveir hrundu. Dauðsföll tengd mengun á vettvangi eru talin þrefalt fleiri en þau sem rakin eru til árásanna.„Nú, nærri 25 árum síðar, hafa fleiri látist af sjúkdómum tengdum 11. september en voru drepnir þann sama dag. Það væri eitt hefðu yfirvöld staðið með eftirlifendum og séð þeim stöðugt fyrir öllu sem þeir þyrftu, en við vitum að það gæti ekki verið fjær því sem varð raunin. Fólk veiktist vegna þess að forystan sem það treysti laug og sagði óhætt að anda að sér eitruðu lofti,“ sagði borgarstjórinn í vikunni.
Sakar yfirvöld um að hafa hylmt yfir alvarleika mengunar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd