Hættulegar aðstæður geta skapast á Svínvetningabraut í Húnabyggð. Vegurinn er í verulega slæmu ásigkomulagi og hefur slitlag flest af honum á löngum köflum. Vegurinn er mikið ekinn dag hvern og þarfnast endurbóta sem fyrst segir sveitarstjóri.„Þetta er bara mjög bagalegt og svörin sem ég hef fengið frá Vegagerðinni er að þetta sé í skoðun og eigi að laga en það bara gerist ekki neitt og þess vegna er staðan eins og hún er núna,“ segir Pétur Arason, sveitarstjóri í Húnabyggð.Kafli Svínvetningabrautar í Húnabyggð er verulega illa farinn. Hættulegar aðstæður geta skapast á veginum sem er lífæð samskipta í sveitinni við Blönduós. Vegagerðin stefnir á viðgerðir í haust eftir að fjármagn fékkst í verkefnið. GETUR SKAPAÐ HÆTTULEGAR AÐSTÆÐUR Mikil umferð er um veginn. Skólabíllinn keyrir þarna