Á sjöunda tug starfsmanna SÁÁ lýsa yfir vantrausti á formann og framkvæmdastjórn samtakanna eftir að þrír stjórnendur sögðu upp störfum. Draga hefur þurft úr fjölda innlagna á Vog og starfsfólk upplifir óvissu og óánægju.„Við höfum auðvitað gríðarlegar áhyggjur af stöðunni, þessum lykilstarfsmönnum sem við höfum misst úr starfseminni síðustu vikur og þessum alvarlegu og óeðlilegu afskiptum sem þær hafa lýst í fjölmiðlum,“ segir Elín Þórdís Meldal aðstoðarfagstjóri á Vogi.Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir, forstjóri SÁÁ, sagði upp störfum í ágúst. Þá sagði fagstjóri meðferðarstöðvarinnar Víkur starfi sínu lausu og því næst Valgerður Rúnarsdóttir framkvæmdastjóri lækninga. Hún lýsti óeðlilegum afskiptum stjórnar af faglegu starfi.Elín segir starfsfólk upplifa að það fái ekki skýr svör frá stjó