Alvarlegt þegar gantast er með fullveldi Íslands

Formaður utanríkismálanefndar segir alvarlegt þegar gantast sé með fullveldi Íslands en að mikilvægt sé að stigmagna það ekki af hálfu Íslands. Hann segir trúnað gilda um fund utanríkimálanefndar þar sem nefndin var upplýst um símtal Donalds Trumps og Bjarna Benediktssonar.Trump, þá nýendurkjörinn forseti Bandaríkjanna, hringdi í Bjarna, þáverandi forsætisráðherra, í nóvemberlok 2024, fáeinum dögum fyrir alþingiskosningar.Símtalið var ekkert leyndarmál á sínum tíma en eins og fréttastofa greindi frá í gær var þess hvergi getið að Trump hefði í tvígang í samtalinu bryddað upp á því hvort Ísland ætti að verða 51. ríki Bandaríkjanna.Varaformaður utanríkismálanefndar sagði í morgun að betra hefði verið ef nefndin hefði fengið að vita fyrr af símtalinu. TILEFNI TIL ÞESS AÐ TAKA ÞVÍ ALVARLEGA
Alvarlegt þegar gantast er með fullveldi Íslands

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd