Ekkert í fjárlagafrumvarpi eða þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar er til þess fallið að laga efnahagsástandið. Þvert á móti minni skattahækkanir hennar óþægilega á stöðuna síðasta vetur, segir Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og líkir ástandinu við kvikmyndina Groundhog Day.