Icelandair segist hafa lagt fram samningstilboð í viðræðum sínum við Flugvirkjafélag Íslands. „Og getur ekki gengið lengra í þeim efnum en kröfur Flugvirkjafélagsins eru langt umfram það sem gengur og gerist í samfélaginu,“ segir í tilkynningu frá flugfélaginu.Kjaraviðræður flugvirkja við Icelandair hafa staðið yfir síðan í lok síðasta árs án árangurs. Samtök Atvinnulífsins og Icelandair vísuðu deilunni til ríkissáttasemjara 13. febrúar.Flugvirkjar í Flugvirkjafélagi Íslands (FVFÍ) sem starfa hjá Icelandair greiða nú atkvæði um hvort fara eigi í verkfallsaðgerðir. Atkvæðagreiðsla hefst í dag og stendur fram á mánudag.Í yfirlýsingu Icelandair segir að flugfélagið harmi að FVFÍ hafi hrundið af stað atkvæðagreiðslu um ótímabundið allsherjarverkfall.„Verði það samþykkt mun það leiða til mikill