Aðalstjórn SÁÁ hefur verið kölluð saman til aukafundar á mánudaginn til að fjalla um vantraustsyfirlýsingu stórs hóps starfsmanna og þær kröfur sem þeir setja fram í henni.„Yfirlýsingin er litin alvarlegum augum og ljóst er að grípa þarf til aðgerða til að byggja upp traust,“ segir í yfirlýsingu frá framkvæmdastjórn SÁÁ sem Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður ritar undir. KRÖFÐUST SKÝRINGA Á sjöunda tug starfsmanna lýsti í dag yfir vantrausti á hendur formanni og framkvæmdastjórn samtakanna.Vantraustsyfirlýsingin kemur eftir að forstjóri SÁÁ, fagstjóri meðferðarstöðvarinnar Víkur og framkvæmdastjóri lækninga sögðu störfum sínum lausum.„Að okkar mati hefur starfsfólki ekki verið veitt fullnægjandi skýring á því hvernig þessi staða varð til, hvar ábyrgðin liggur eða hvernig tryggja eigi f