Persónuvernd hefur hafið frumkvæðisathugun á vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst þar sem spurt var hvort Ísland skyldi hefja nú aðildarviðræður við Evrópusambandið.Í tilkynningu frá Persónuvernd segir að alls hafi borist 54 ábendingar og kvartanir vegna óumbeðinna fjarskipta og vinnslu persónuupplýsinga í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar.Athugun Persónuverndar nær til allra stjórnmálaflokka sem eiga fulltrúa á Alþingi og til samtakanna Já 2026 (SJÁ) og Áfram Ísland.Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar segir athugunina fyrst og fremst snúast um það hvort upplýsingum hafi verið miðlað frá stjórnmálaflokkum til aðildarsamtakanna.„Við erum að fá fleiri ábendingar en venjulega,“ segir Helga sem tekur fram að lögbundið hlutverk Persónuverndar sé að spyr