Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) tekur kæru Aðalsteins Kjartanssonar blaðamanns til efnismeðferðar.Aðalsteinn telur að brotið hafi verið gegn 8. grein mannréttindasáttmála Evrópu því innlendir dómstólar hafi ekki verndað mannorð hans gegn tilhæfulausum ásökunum bloggarans Páls Vilhjálmssonar um alvarlega glæpi.Gímaldið greindi fyrst frá. SAKAÐI AÐALSTEIN UM GLÆPI Bloggarinn Páll Vilhjálmsson tjáði sig reglulega um rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á Aðalsteini og öðrum fyrir meinta byrlun og afritun á síma Páls Steingrímssonar skipstjóra. Rannsóknin var felld niður 2024.Páll sakaði í skrifum sínum Aðalstein meðal annars um að hafa framið glæpi sem Páll skipstjóri kærði hann fyrir.Aðalsteinn kærði Pál vegna skrifanna og fór fram á að þau yrðu dæmd dauð og ómerk. Héraðsdómur Rey