Rúmlega sextíu starfsmenn SÁÁ hafa undirritað vantraustsyfirlýsingu á hendur formanni SÁÁ og framkvæmdastjóra samtakanna. Áður höfðu forstjóri SÁÁ, Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir og Þóra Björk Ingólfsdóttir, fagstjóri meðferðarstöðvarinnar Víkur, sagt upp störfum í ágúst vegna óánægju með stjórnina og ásakana um að stjórnin væri að hafa óeðlileg afskipti af faglegu starfi SÁÁ. „Staðan er bara mjög alvarleg,“ segir Helga Katrín Jónsdóttir,...