Matvælastofnun varar neytendur við neyslu á River hrísgrjónum 1 kg vegna skordýraleifa sem fundust í pakkningu. Danól ehf. flytur hrísgrjónin inn en þau eru eingöngu seld í verslunum Samkaupa. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík.Fólk er beðið um að neyta vörunnar ekki.Aðsend / MASTInnköllunin snýr eingöngu að vöru sem passar við eftirfarandi lýsingu: * Vörumerki: River Rice * Vöruheiti: River Rice White rice * Nettómagn: 1 kg * Vörunúmer: 430055 * Best fyrir dagsetning: 02.06.2028 * Innflytjandi: Danól, Fosshálsi 25, 110 Reykjavík * Dreifing: Verslanir Samkaupa