Smyglaði kannabis fyrir fría ferð til Japans

Tvær bandarískar konur á þrítugsaldri eiga allt að tíu ára fangelsi yfir höfði sér fyrir fíkniefnasmygl til Japans. Þær voru teknar á alþjóðaflugvellinum í Tokyo með þrjátíu kíló af kannabis falin í ferðatösku. Önnur þeirra sagðist hafa tekið að sér smyglið fyrir ókeypis ferð til Japans. Hin neitar sök og kveðst ekki hafa vitað af fíkniefnunum í farangrinum.Verðmæti kannabisefnanna er talið hlaupa á jafnvirði tæplega hundrað og tuttugu milljóna íslenskra króna.Hörð viðurlög eru í Japan við fíkniefnabrotum. Fólk sem smyglar kannabisefnum í hagnaðarskyni til Japans gæti þurft að sitja inni í allt að tíu ár og greiða allt að þrjár milljónir jena í sekt. Það er jafnvirði rúmlega 2,4 milljóna króna.
Smyglaði kannabis fyrir fría ferð til Japans

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd