Tilkynningar um minka borist frá Vestfjörðum til Vestmannaeyja

Almenningur virðist verða mun varari við minka en áður eftir að hundruð dýra sluppu úr minkabúinu Dalsbúi í Mosfellsdal í lok júlí. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu. Talið er að brotist hafi verið inn og dýrunum sleppt út.Mikill viðbúnaður var í Mosfelldal og gildrur voru settar upp á svæðinu. Fólk var hvatt til að tilkynna sínu sveitarfélagi um minka sem urðu á vegi þess. YFIR 200 TILKYNNINGAR Þóra Jónasdóttir yfirlæknir hjá MAST fundaði með Mosfellsbæ í vikunni um stöðu mála. Hún segir að Mosfellsbæ hafi borist yfir 200 tilkynningar um minka en aðeins þriðjungur þeirra hafi verið innan bæjarmarkanna.„Það bárust tilkynningar um minka til Mosfellsbæjar allt frá Vestfjörðum til Vestmannaeyja. Ég tel engar líkur á að eldisminkurinn myndi ferðast svona langt. Hann er yfirleitt hálfklun
Tilkynningar um minka borist frá Vestfjörðum til Vestmannaeyja

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd