Kaldvík hefur fengið rekstrarleyfi fyrir laxeldi í þar sem hægt verður að framleiða allt að 10 þúsund tonn á ári. Heimildin nær til eldis í Sörlastaðavík, Selstaðavík og Skálanesbót.Matvælastofnun gaf leyfið út. Samkvæmt burðarþolsmati Hafrannsóknastofnunar fyrir Seyðisfjörð má lífmassi í eldinu vera allt að 10 þúsund tonn. Þó gerir áhættumat erfðablöndunar ráð fyrir að þar megi aðeins vera 6.500 tonn af frjóum laxi. Því eru gefin út tvö rekstrarleyfi. Annað er fyrir 6.500 tonnum af frjóum laxi, hitt fyrir 3.500 tonnum af ófrjóum laxi. Horft yfir Seyðisfjörð.RÚV / Rúnar Snær Reynisson