Auglýsingatekjur íslenskra fjölmiðla hafa dregist saman á sama tíma og sífellt stærri hluti auglýsingafjár fer til erlendra fyrirtækja. Um leið er deilt um sérstöðu RÚV, sem fær milljarða úr ríkissjóði til að sinna almannaþjónustu en selur jafnframt auglýsingar í samkeppni við einkarekna miðla. Nú stígur stjórnarformaður RÚV fram og segir umræðuna um ríkismiðilinn skyggja á stærri vanda.