Hallarekstur og fækkun íbúa í Norðurþingi

Íbúum í Norðurþingi fækkaði um 107 á níu mánaða tímabili frá 1. desember 2025. Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri Norðurþings, tengir þessa fækkun vinnslustoppi PCC á Bakka. > Það er mikið áhyggjuefni og sérstaklega bara tengt lokun PCC á Bakka. HALLAREKSTURINN ÆTTI EKKI AÐ KOMA Á ÓVART Á fundi byggðarráðs í gær var kynnt hálfs árs uppgjör sveitarfélagsins. Hallarekstur sveitarfélagsins nemur 404 milljónum króna og segir Bergþór það beintengt við verksmiðju PCC og ætti ekki að koma á óvart.„Vandamálið er bara að tekjurnar okkar standa í stað og útsvarið er undir því sem það var á sama tíma í fyrra. Tímabilið sem er verið að miða við er tímabilið sem PCC var á fullum afköstum fram til júlí í fyrra. Þetta er sex mánaða uppgjör. Þetta kemur fast við okkur núna,“ segir Bergþór. MIKILL ÁHUG
Hallarekstur og fækkun íbúa í Norðurþingi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd