Skerðing hefur orðið á þjónustu Reykjavíkurborgar við niðurskurð meirihlutans eða á eftir að koma fram, segir Kári Sigurðsson, formaður Sameykis. Hann segir að starfsfólk Reykjavíkurborgar hafi upplýst meirihlutann um þetta.„Þá skiptir ekki máli hvort þú sért að tala um félagsráðgjafa, fólk í frístundageiranum, forstöðumenn félagsmiðstöðva, frístundaheimila, talmeinafræðinga, sálfræðinga, fólk á velferðarsviðinu eða á skóla- og frístundasviðinu, þau eru öll með sömu söguna. Þau eru að segja við meirihlutann núna að það sé þjónustuskerðing eða að hún sé á leiðinni. Þau hafa áhyggjur og það vantar að það sé hlustað á þau. Það er vont að heyra meirihlutann tala um einhvers konar samráð en þetta er auðvitað bara eftirásamráð.“Þetta sagði Kári Sigurðsson í Morgunútvarpinu. Hann fagnar orðum Ein