Mohamad Thor Jóhannesson, sem áður hét Mohamad Kourani hefur lokið afplánun og var fluttur af landi brott á þriðjudag. Farið var með hann til heimalands síns, Sýrlands.Mohamad sætir endurkomubanni á Schengen-svæðið.Mohamad var dæmdur í átta ára fangelsi 2024 fyrir tilraun til manndráps og fleiri brot. Ragna Bjarnadóttir, forstjóri Fangelsismálastofnunar, staðfesti í samtali við fréttastofu að Mohamad hefði verið fluttur úr landi á þriðjudag og að hann væri kominn til Sýrlands.Fréttin verður uppfærð.