Sigurður Helgi Pálmason, varaformaður utanríkismálanefndar, telur að betra hefði verið ef nefndin hefði fengið að vita fyrr af símtali Donalds Trump til Bjarna Benediktssonar, þáverandi forsætisráðherra, stuttu fyrir alþingiskosningar 2024. Málið var fyrst rætt á síðasta fundi utanríkismálanefndar.„Ég held að það hefði verið betra ef við hefðum vitað af þessu fyrr. Ég held að það hefði verið mjög gott fyrir utanríkismálanefnd að vita af þessu samtali. Það er nú þannig að þó að Trump sé nú oft sko það er ekki mikið samhengi hjá Trump en þá er það mjög mikilvægt í alþjóðamálum að það sé þetta ákveðna samhengi,“ segir Sigurður.RÚV greindi frá því í gær að Trump, sem þá var ekki orðinn Bandaríkjaforseti, hefði hringt í Bjarna skömmu fyrir þingkosningar 2024. Þar hefði hann meðal annars sagt í