Kristrún ætlar að ræða við Trump um samskipti ríkjanna

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ætlar að ræða samskipti Íslands og Bandaríkjanna við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, þegar hún hittir hann í New York síðar í mánuðinum. Hún segist gera þá kröfu að fólk virði fullveldi og sjálfstæði landsins.Þetta sagði Kristrún í Kastljósi í gærkvöld þegar hún var spurð út í símtal Trumps og Bjarna Benediktssonar, þáverandi forsætisráðherra, skömmu fyrir síðustu þingkosningar. RÚV greindi frá því í gær að Trump hefði sagt í gamansömum tón að í hópi vina sinna og vandamanna hefði stundum verið rætt um að Ísland væri 51. ríki Bandaríkjanna. Bjarni mun hafa eytt þessu tali og tekið því sem léttu gríni, Trump hafi þó sagt honum að hugsa þetta vel að loknum kosningasigri.Kristrún vísaði í fyrri ummæli sín, eftir að Trump birti kort af mörgum ríkjum
Kristrún ætlar að ræða við Trump um samskipti ríkjanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd