Breytilegar áttir

Breytilegar áttir leika um landsmenn í dag, allt frá golu upp í allhvassan vind vestan og norðvestan til þar sem verður hvassast þegar líður á daginn. Víða verður einhver væta nema helst á Norðaustur- og Austurlandi.Veðurspáin er svohljóðandi:Suðvestan 5-13 og skúrir, en þurrt að kalla á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 6 til 13 stig, mildast á Norðausturlandi. Snýst smám saman í vestan og norðvestan 8-15 með rigningu fyrir norðan seinnipartinn og slyddu til fjalla, fyrst á Vestfjörðum. Kólnar í veðri. Hvassari um tíma í nótt.Minnkandi norðvestanátt á morgun og dregur úr úrkomu. Víða hægviðri annað kvöld, en norðvestan 5-13 allra austast. Stöku skúrir á víð og dreif. Hiti 3 til 12 stig, svalast fyrir norðan.
Breytilegar áttir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd