Undanfarnar vikur hafa ýmsar frásagnir Donalds Trump Bandaríkjaforseta um hvar hann var á þessum degi fyrir 25 árum verið dregnar fram. Aldarfjórðungur er liðinn frá því að tveimur flugvélum var flogið á Tvíburaturnana í New York-borg með þeim afleiðingum að turnarnir féllu báðir. Tæplega þrjú þúsund létust í árásinni.