25 ár frá mannskæðustu hryðjuverkaárásum sögunnar

Í dag eru 25 ár frá hryðjuverkaárásunum í Bandaríkjunum, 11. september 2001. Árásirnar og eftirmálar þeirra mörkuðu djúp sár í þjóðarsál Bandaríkjamanna og mun víðar enda var enginn ósnortinn af þeim mikla harmleik sem átti sér stað þennan dag. Heimsmyndin breyttist og tilveru fólks var snúið á hvolf.Alls létust 2.977 af 90 þjóðernum þegar fjórum flugvélum var rænt á innan við klukkustund og þeim flogið á Tvíburaturnana í New York og bandaríska varnarmálaráðuneytið Pentagon. Fjórða flugvélin brotlenti á berangri í Pennsylvaníu. Árásirnar eru mannskæðustu hryðjuverkaárásir í sögunni.Atburðarrásin þennan dag hefur verið kortlögð þaula en fyrst um sinn var talið að um slys væri að ræða þegar fyrri vélin flaug á norðurturn Tvíburaturnanna kl. 8:46. Lögregla, sjúkraflutningafólk og slökkviliðsf
25 ár frá mannskæðustu hryðjuverkaárásum sögunnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd