Afturelding og Breiðablik mætast í bikarúrslitum karla í fótbolta í kvöld. Breiðablik spilar í efstu deild og Afturelding í næstefstu. Mosfellingar eru að vísu á leið aftur upp í efstu deild. Breiðablik hefur einu sinni orðið bikarmeistari og þrisvar leikið til úrslita. Liðið lyfti bikarnum árið 2009 og því nokkuð langt liðið síðan síðast.Mosfellingar eru að leika til bikarúrslita í fyrsta sinn og gera nú atlögu að sínum fyrsta stóra titli.Breiðablik hefur á leið sinni í úrslitaleikinn lagt Kormák/Hvöt, Þrótt og Ægi. Þá mætti liðið ríkjandi Íslandsmeisturum Víkinga í undanúrslitum þar sem Blikar unnu 3-0.Afturelding mætti Ými, Njarðvík og Stjörnunni þar sem liðið vann öruggt. Í undanúrslitum mættu Mosfellingar Fylki þar sem leikurinn endaði í vítaspyrnukeppni.Liðin mætast á Laugardalsvelli