„Sú staða sem birtist okkur í uppgjöri yfir fyrstu sex mánuði ársins lýsir þeirri alvarlegu stöðu sem uppi er í rekstri borgarinnar og skýrir ástæðu þess að við erum í miklu hagræðingarátaki. Við þurfum að taka til í rekstri borgarinnar, draga úr sóun og auka skilvirkni, en markmiðið er alltaf að endingu að bæta þjónustuna við íbúa borgarinnar.“