Fyrrum forsetafrú Venesúela, Cilia Flores, hefur óskað eftir því að vera færð úr fangelsi í stofufangelsi vegna slæmrar heilsu.Flores og eiginmaður hennar, fyrrum forseti Venesúela, Nicolas Maduro, voru handtekin í sérstakri hernaðaraðgerð Bandaríkjahers í byrjun árs og færð í varðhald í Bandaríkjunum þar sem þau hafa verið í fangelsi síðan.Flores er 69 ára. Lögmaður hennar segir hana hafa verið við góða heilsu áður en hún var handtekin en heilsu hennar hafi hrakað mjög í fangelsi því hún hafi ekki átt kost á fullnægjandi læknismeðferð. Því er farið fram á að hún verði færð í stofufangelsi og verði þar undir sólarhringseftirliti og fái rafrænt ökklaband.Hjónin bíða enn dóms en þau eru ákærð fyrir að hafa aðstoðað við að smygla tonnum af kókaíni til Bandaríkjanna. Bæði neita sök en eiginmað