Lögfræðingur Musk hótar málaferlum vegna heimildamyndar

Lögfræðingur Elon Musk hefur hótað málaferlum gegn framleiðendum heimildamyndarinnar Musk vegna ærumeiðinga.Lögfræðingurinn Alex Spiro segir í bréfi sem hann sendi til framleiðslufyrirtækisins Jigsaw Productions, sem framleiddi myndina, að leikstjóri myndarinnar Alex Gibney og framleiðslufyrirtækið hafi byggt myndina upp á fyrirframgefinni niðurstöðu.Í bréfinu segir einnig að Gibney hafi ekki sannreynt fullyrðingar í myndinni og borið þær undir Musk eða hans nánasta fólk. Þess er jafnframt krafist að aðstandendur myndarinnar varðveiti öll gögn og efni tengd framleiðslu heimildamyndarinnar, svo sem upptökur, rannsóknargögn og öll samskipti, þar sem búast megi við málaferlum vegna myndarinnar.Heimildamyndin Musk var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum á þriðjudag. Myndin fékk góðar viðt
Lögfræðingur Musk hótar málaferlum vegna heimildamyndar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd