Manchester United sneri aftur í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í kvöld eftir þriggja ára fjarveru og byrjaði endurkomuna á 4-0 sigri á Sabah Baku frá Aserbaídsjan. Mateus Cunha, Bruno Fernandes, Benjamin Sesko og Lisandro Martinez skoruðu mörk Manchester-liðsins.Sigur Bayern München á Bodø/Glimt frá Noregi var svo enn öruggari því leiknum lauk með 5-0 sigri Þýskalandsmeistaranna. Michael Olise skoraði tvö mörk og Harry Kane, Jamal Musiala og Alphonso Davies eitt mark hver.Önnur úrslit kvöldsins urðu þau að Como frá Ítalíu sigraði Leipzig frá Þýskalandi 4-1. Franska liðið Lens vann 3-2 útisigur á tékkneska félaginu Slavia Prag. Þá gerðu PSV frá Hollandi og Shakhtar Donetsk frá Úkraínu 1-1 jafntefli rétt eins og ítalska liðið Roma og tyrkneska liðið Fenerbache sem skildu sömuleiðis jöfn, 1-