Árásir Ísraelshers mældust á jarðskjálftamælum í Líbanon

Árásir Ísraelshers í Líbanon mældust á jarðskjálftamælum en samkvæmt bandarísku jarðfræðistofnuninni mældist skjálfti af stærðinni 4,1 í Líbanon í kvöld. Þó var ekki um neinn jarðskjálfta að ræða heldur árásir Ísraelshers á neðanjarðarbyrgi Hezbollah-samtakanna. Ísraelski herinn greindi frá því að tekist hafi að eyðileggja neðanjarðarbyrgið og birti ísraelska varnarmálaráðuneytið myndband af sprenginunni þar sem eldtungur sjást stíga upp til himins. Blaðamenn AFP-fréttastofunnar segja mikinn dynk hafa fylgt sprengingunni. > הבטחנו וקיימנו. המחבלים חוסלו ומנהרות עלי טאהר הושמדו. כל הכבוד לצה"ל 🇮🇱 https://t.co/yd9n4KjqGH— ישראל כ”ץ Israel Katz (@Israel_katz) September 10, 2026
Árásir Ísraelshers mældust á jarðskjálftamælum í Líbanon

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd