Baðstofa sem starfrækt hefur verið í grásleppuskúr við Ægisíðu hefur ekki starfsleyfi. Reykjavíkurborg ætlar að höfða mál fyrir dómstólum verði skúrinn ekki tæmdur.Sánagús ehf. sem rekur sánu í grásleppuskúrnum mótmælti áliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um að starfsleyfi þurfi um reksturinn og kærði til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamál.Í byrjun vikunnar úrskurðaði nefndin og féllst ekki á kröfu Sánagús um frestun réttaráhrifa á meðan málið er til meðferðar hjá nefndinni.Þetta er ekki eina hindrunin sem blasir við rekstri baðstofu í grásleppuskúrnum á Grímsstaðavör. Reykjavíkurborg er nefnilega eigandi skúrsins.Fyrrverandi eigandi skúrsins afsalaði sér skúrnum til borgarinnar fyrir 19 árum. Borgin lét gera skúrinn upp fyrir tæpar fimm milljónir króna. Í maí krafðist borgarlög