Donald Trump Bandaríkjaforseti bryddaði upp á því í símtali við Bjarna Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra, í nóvember 2024 hvort Ísland ætti að verða 51. ríki Bandaríkjanna. RÚV greinir frá þessu í dag. Heimildin hefur rætt við einstakling innan stjórnkerfisins sem staðfestir efni símtalsins. Símtalið átti sér stað 26. nóvember 2024, fjórum dögum fyrir alþingiskosningar. Trump hafði þá skömmu áður verið kjörinn...